| Velkomin |
| Við heitum Dagur Björn, Bjarki Fannar og Gunnar Andri Benediktssynir.
www.dagurbjorn.barnaland.is Til að skoða meira er nóg að vita millinafn mömmu okkar þó án íslenskra stafa og hástafa... |
~~~~~~~~
~~~~~~~~
~~~~~~~~ Ég, Dagur Björn, fæddist árið 2002, þann 17.ágúst kl.13:33 á Landspítalanum í Reykjavík. Þar sem að ég var í sitjandi stöðu var ég tekinn með keisara. Ég fæddist rúmum 6 vikum fyrir tímann og þurfti því að eyða fyrstu 5 vikum lífs míns á spítalanum, ég var nefnilega svolítið mikið lasinn. Ég var 2150gr og 45cm. Ég, Bjarki Fannar, fæddist árið 2006, þann 29. júní kl. 22:22 á Landspítalanum í Reykjavík. Ég fæddist svona nokkurnvegin á réttum tíma en mamma mín var ofsalega fegin þegar ég var kominn í heiminn. Ég vildi ekki vera minni maður en stóri bróðir og valdi það líka að koma leið keisarans. Ég var 3195gr og 52 cm Ég, sem ekkert nafn hef fengið fæddist 2. maí 2010 kl. 17.54 á Landspítalanum í Reykjavík. Ég tók stóra stóra bróður minn dálítið til fyrirmyndar og fæddist eftir rétt rúmlega 36 vikna meðgöngu. Ég var þó vel sprækur og fékk að fara heim á réttum tíma og auðvitað er ég líka keisari. Ég var 2870gr og 48cm. Mamma okkar heitir Lára og pabbi Benedikt og við búum saman í Garðabænum ásamt kisanum okkar. |
|
|
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt. Krabbinn
22. júní - 22. júlí Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr. Nautið
20. apríl - 20. maí Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. “Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?” Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
Vinir okkar Eyjólfur Andri, Erna Sólveig og Atli Björn Gunnar frændi og Lilli frændi Tanja Kristín, Mikael Aron og Hilmir Hrafn Ágústa Rut Andradóttir Tara Lóa og Árni Jóhann Árnabörn Salka Eik, Funi Hrafn og Grímur Darri Freyr og Eyþór Örn Þórðarsynir Bergur, Trausti og Logi Baldur Embla Hrönn og Stúfur Eva, Ari og Nói Kanaríeyjargríslingar Jón Ásgeir og Jóhann Birkir
|
| Þú ert gestur nr. 74773 |